Bloggsíða Lóu
Áhugavert
Afþreying
09.06.2008 21:28:47 / olafiaj

Sumarblíða:-)

Það er búið að vera hreint frábært veður undanfarið, ekki slæmt ha og maður bara að verða svoldið tannaður;)

Við skruppum í húsið hans pabba um helgina, það var bara svona sumarbústaðarfílingur, ekkert smá nice. Á laugardaginn gerðum við ýmislegt, fórum á róló, röltum á loppumarkaðinn, kíktum aðeins til Sigga og Völlu, fórum á ströndina, gerði heiðarlega tilraun til að grilla, kaldur bjór, kaffi og bailies. Sem sagt bara höfðum það gott. Svo hittum við mömmugruppuna í gær og kíktum svo á Eydísi og co á leiðinni heim. Já, bara nokkuð góð helgi.


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 20:14:40 / olafiaj

...

Æ, það er frábært hvað allir sýna okkur mæðgum mikinn áhuga, hvernig við höfum það og hvað við erum að bralla.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 20:40:11 / olafiaj

Litla systir í heimsókn:)

já, þá er Elísa og Bjössi í heimsókn hjá okkur, þau komu á sunnudaginn. Það er búið að vera gaman að sjá þau. Kíktum út að borða áðan, sem var mjög notalegt en maturinn var ekki alveg að standast okkar kröfur. Svo er pabbi að koma í fyrramálið, hann verður hér um helgina, hann ætlar að reyna að mála húsið í Faxe. Annars hef ég ekki getað gert mikið með krökkunum af því að ég hef verið að vinna, ég hef farið með Elísabetu á vöggustofuna um kl.7 á morgnana og svo höfum við verið komnar aftur heim um kl. 17. Elísabet hefur verið algjör morgunhani, mömmu sinni til mikillar mæðu, hún hefur verið að vakna um kl. 5 á morgnanna, eiginlega full snemmt;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 17:56:10 / olafiaj

Kvef, arg!!

Ég er búin að vera frekar kvefuð síðustu daga, frekar pirrandi.

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur mæðgum núna í maí. Það byrjaði náttúrulega á eins árs afmæli dúllunnar, svo átti Halldór Kári 3 ára afmæli nokkrum dögum síðar og fórum við í afmæli til hans út í garði í sól og blíðu. Það er nefnilega búið að vera þetta ljómandi veður:)
Svo fengum við góða heimsókn um helgina, en það voru "spillifrænkurnar", Gugga frænka, Harpa og Kristin. Það var mjög gaman að fá þær í heimsókn og nóg að gera. Ég fékk mér barnapíu í fyrsta skiptið á laugardagskvöldið, og fór ég með stelpunum út að borða í Tívolí, það var mjög gaman. Ég hafði mjög gott af því að komast aðeins út, fyrir utan það að ég varð pínu slöpp daginn eftir;) En svo var Gurra frænka og Árni líka í Köben þessa helgi, Gurra ætlaði að hlaupa maraþon á sunnudaginn en hafði meidd sig í lærinu fyrir stuttu og var því bara í klappliðinu. En við fórum út að borða með þeim og hlaupagenginu í gærkvöldi, fórum á stað sem heitir Peter Oxe, flottur staður og mjög góður matur. Elísabet var í essinu sínu, henni leiðist ekki að fá svolitla athygli. Hún fór frekar seint að sofa í gær eða kl. 22, sofnaði í kerrunni á leiðinni heim af veitingastaðnum.

Þetta er bara búinn að vera nokkuð góður mánuður, nóg að gera og ekki verra að fá svona góða gesti í heimsókn. Svo kemur Elísa systir um næstu helgi með honum Bjössa sínum og ætla þau að vera hérna í viku

bið að heilsa í bili.

kv. Lóa

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 19:25:15 / olafiaj

Ekki enn

ég er ekki enn búin að finna mér píanista. :(

En Hildur og Halldór Kári komu til okkar í morgun og fóru með Elísabetu út á róló svo að ég gæti æft mig svoldið. Búin að vera að vinna nær alla vikuna og eiginlega ekkert æft mig, sem er náttúrulega ekki svo gott. En það var mjög fínt að komast aðeins út og vinna. Var að vinna í mötuneyti í nokkradaga, orðin snillingur að gera hinar ýmsu samlokur;), var svo að þjóna í utanríkisráðuneytinu í tvo daga og fer aftur þangað á mánudaginn.

Dúllan mín verður eins eftir tvær vikur!!!! ég hefði aldrei getað trúað að tíminn gæti liðið svona hratt, mér finnst ekki langt síðan ég hélt á henni í fyrsta sinn, en margt hefur gerst síðan þá:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 19:56:44 / olafiaj

Fyrirsöngur í maí

Ég er að fara að taka þátt í samkeppni um stöðu í  óperukór det Kongeliege Teater hér í Kaupmannahöfn. Fyrirsöngurinn er 8. maí og er ég búin að fá að vita hver skylduverkin eru, það eru tvær aríur og tvö kórstykki. Núna þarf ég bara að halda áfram að vera dugleg að æfa mig, ég hled ég sé loksins að vera komin í almennilegt form, gekk allavega nokkuð vel í vikunni. Einhver sem þekkir góða píanista í Köben? Væri mikið til í að kynnast einum!!!!

Annars allt gott að frétta af okkur mæðgum!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 11:28:44 / olafiaj

hmmmm

.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 18:52:08 / olafiaj

X factor

Kvefaða stelpan mín er sofnuð,

Ég er búin að poppa og tilbúin fyrir úrslitin í X factor

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 19:27:33 / olafiaj

Núna held ég að vorið sé að koma!!!

Það var búið að vera þetta fína veður en í síðustu viku varð frekar kalt, kaldara en það hafði verið í nær allan vetur, snjóaði smá (ég veit, það er ekkert miðað við það sem hefur verið heima á klakanum) en dag var þetta fína veður, maður vaknaði kl. 6 og sólin farin að skína inn um gluggann. Við fórum snemma af stað í morgun, fór með Elísabetu á vöggustofuna kl. 7 (hún hefur aldrei mætt svona senmma áður) og svo fór ég af stað til innriby til að vinna. Ég skráði mig um daginn á svona "vikar" skrifstofu, þau sjá um að finna fólk fyrir hin og þessi fyrirtæki í afleysingar. Ég var beðin um að vinna núna í 3 daga, miðvikud. fimmtud og föstud, ég sit og svara í símann fyrir House of Coffee, þau eru með kaffivélar, sjálfsala út um alla Danmörk og fólk hringir til okkar til þess að panta vörur og viðgerðamenn. Manni var nú bara hent beint út í djúpu laugina og lenti ég nú í ýmsu, t.d. pirruðum kúnnum sem hefðu helst viljað að viðgerðamaðurinn hafi komið í gær. En þetta er fín reynsla og reynir svoldið á mína dönskukunnáttu og vonandi bætir hana örlítið. En það getur verið pínu erfitt að skilja suma, skrifaði stundum vitlaust niður nöfn og addressur og þurfti þá að reyna að finna út úr því eða bara hringja aftur í kúnnann:s

En annars þá er allt gott að frétta af okkur mæðgum. Pabbi kom til okkar um páskana og það var mjög gaman að hafa hann, Elísabet var sérstaklega ánægð með afa sinn. En þessi litla dama mín er orðin nokkuð fingralöng, hún er farin að standa upp við allt sem hún getur og ég er farin að þurfa að fjarlægja hina og þessa hluti. Svo tókst henni allt í einu að opna geisladiskaskápinn, opna og loka opna og loka og týna út, það var fjarlægt úr neðstu hólfunum. En það gengur mjög vel hjá henni á vöggustofunni, hún er mjög ánægð. Hún er nú yfirleitt hress og kát, vaknar með bros á vör og byrjar að hoppa og kjafta, hún er blaðrandi allan daginn. Fleira þessi elska er komin með 4 tennur í viðbót, framtennurnar í efri góm, ein kom fyrir um tveim vikum síðan og svo stungu hinar sér í gegn núna í vikunni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 19:32:14 / olafiaj

Jæja loksins komin aftur í samband!!!

Þá er ég loksins komin með nettengingu í litlu íbúðina okkar í Valby. En við fluttum hingað um miðjan janúar og okkur líkar bara nokkuð vel. Aðeins meira líf hér. Elísabet Ósk er byrjuð á vöggustofu og gengur það bara nokkuð vel, er bara hress og kát, bara smá fúl þegar mamma er að fara en er fljót að jafna sig segja fóstrurnar. Það hefur verið margt að gerast hjá þessu litla krútti mínu, alltaf að uppgötva eitthvað nýtt og gera ýmsar æfingar. Fer á eftir mömmu sinni út um allt og er meira spennt yfir því að fikta í öllu öðru en dótinu sínu þessa dagana. Ég er á fullu þessa dagana að leita mér að vinnu, er búin að sækja um á nokkrum stöðum og bíð eftir að heyra eitthvað, vonandi fer nú eitthvað að gerast fljótlega. Núna eftir að Elísabet byrjaði á vöggustofunni hef ég verið að sinna atvinnuleitinni og æfa mig og bara slappa aðeins af, það var svoldið skrítið fyrst eftir að hún byrjaði að koma heim og litla daman ekki með, vissi hreinlega ekki hvað ég ætti að gera af mér:)
Ég fer á morgun í fyrsta skiptið í óperuna hér í Köben, er að fara að sjá opna æfingu á Rusalka eftir Dvorak, fer svo i næstu viku að sjá sýningu og Hildur vinkona ætlar að passa Elísabetu á meðan, það verður gaman að fara í óperuna.

Jæja nóg í bili, læt svo kannski heyra í mér eitthvað meira núna! (þ.e. ef það er einhver sem er að lesa.)

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 19:17:21 / olafiaj

...

Það var frekar óskemmtilegt ástandið inn á baðherbergi síðustu tvo daga, eða byrjaði að gerjast á laugardaginn og svo í gær var allt orðið stíflað. þ.e. klósettið og farið að koma skemmtilegheit um um niðurfallið í stutunni, mmmm. Það var smá útileigustemmning í gærkveldi, maður skellti sér bara hérna út fyrir og já. En það kom kall hingað áðan að hreinsa skolpið. Elísabetu fannst þetta voða spennandi. Við vorum sem betur fer nýbúnar að borða áður en hann kom. Ég hef ekki mikla matarlyst eftir allt þetta og skrúbbið á eftir. Núna er ég búin að sótthreinsa baðherbergið og það bara glansar. Núna getur maður farið óhræddur í sturtu og á klósettið!!!!

Það eru 3 dagar þangað til við mæðgur komum heim á klakann, maður er orðinn svoldið spenntur. Aðeins byrjuð að þvo þvott, búin að kaupa allar jólagjafir og pakka þeim inn, svo er bara að sjá hvort þetta komist allt fyrir í töskuna.

Það var reyndar allt að gerast í gær, klósettvesenið, ljósið í forstofunni fór og í stofunni. Svo þegar ég var að keyra heim í gærkveldi komst ég að því að bíllinn var nánast ljóslaus, nema þá háuljósin, úff, ég held ég hafi aldrei verið með eins mikið í maganum við það að keyra áður. Náttúrulega svartamyrkur úti, án háu ljósanna sá ég bara ekki neitt, svoldið hættulegt. Fer á morgun að rétta nýjum perum.

Jæja, nóg í bili.

 Hlakka til að sjá alla heima á klakanum, fljótlega:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 12:16:15 / olafiaj

Styttist í jólin!

Ég sakna mömmu alveg ótrúlega mikið, hún hefði svo viljað kynnast nöfnu sinni. En í dag eru 5 ár síðan hún fór frá okkur, og mér finnst það bara alltaf jafn erfitt. En ég hef litla engilinn minn, sem varð 7 mánaða í dag, og það er það mikilvægasta. En ég veit að mamma er hjá okkur alltaf og það er huggun.

 Ég er búin að finna íbúð handa okkur í Kaupmannahöfn, lítil tveggja herbergja íbúð og munum við flytja eftir áramótin.  Þetta verður spennandi og gaman að flytjast nær öllum. Það er vonandi að Elísabet Ósk fái svo fljótlega pláss á vöggustofu eða hjá dagmömmu. Hún var komin með pláss hér en nú ætla ég að segja upp því plássi. Svo þarf ég að fara á fullt að finna mér vinnu.

Ég er farin að syngja aðeins meira, sem er mjög gott, en kannski ekki alveg eins mikið og ég hefði viljað. Það gengur bara vel í tímunum hjá Kirsten, ég er allavega ánægð og reyni að vera svoldið dugleg þó að ég geti nú alveg verið duglegri:)

Það verður ekki langt þangað til sú stutta verður farin að fara á eftir mömmu sinni, hún er svo dugleg. Hún er farin að sitja alveg sjálf og veltir sér aðeins, ekkert of mikið samt. En það er bara svo krúttlegt þegar hún snýr sér á mallakútnum, reyndar með smá hjálp handanna. En annars þá förum við bráðum að koma í heimsókn til Íslands, komum 13. des. Það verður svo gaman, langt síðan við höfum séð alla.

 Jæja nóg í bili!

Kær kveðja úr Fakse Ladeplads

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 19:17:43 / olafiaj

á leið til Hollands

Við mæðgur erum að fara til Hollands á morgun, verðum í tæpa viku eða 6 daga. Uros vinur minn var svo góður að bjóða okkur gistingu og ætla strákarnir að taka á móti okkur á flugvellinum. Það eru víst voða margir sem langar til að sjá okkur, þannig að við verðum að skipuleggja einhvern hitting. Annars á ég örugglega eftir að hitta marga þegar ég kíki í skólann. Ég stefni á að fara í allavega einn söngtíma, ég hef því miður ekki verið neitt allt of dugleg að æfa mig undanfarið þannig að ég hef ekki mikið efni til að taka með mér í söngtímann en Barbara ætlar að gefa mér smá spark til að koma mér almennilega í gang.

 

Ég var að skrá mig í smá kúrs, eða inngangskúrs fyrir viðskiptafræði, sem byrjaði núna í vikunni. Ég vissi ekki að hann var að byrja akkúrat núna, sá það hvergi á síðunni, en þau buðu mér samt sem áður að taka þátt og ég lét slag standa. Þetta er allt í fjarnámi, sem hentar mér náttúrulega mjög vel. Ég pantaði bækurnar í gær og bíð svo bara eftir þeim núna, ætli þær verði ekki komnar þegar ég kem aftur frá Hollandi og þá þarf ég að vera dugleg að lesa og gera verkefni, það á nefnilega að skila fyrsta verkefninu eftir næstu viku. 

 Litla dúllan mín varð 6 mánaða á laugardaginn, hjúkkan kom til okkar í gær og hún segir að Elísabet Ósk dafni og þroskast mjög vel, sé virkilega fín stelpa og hún sagði líka að ég sé að standa mig vel:)

Jæja nóg í bili, kem kannski svo með fleiri fréttir þegar við komum aftur frá Hollandi. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 10:57:41 / olafiaj

Það gengur eitthvað

Jæja, það eru eitt og hálft kíló farin, bara nokkuð sátt. Ef þetta heldur áfram svona þá verð ég bara orðin nokkuð flott um jólin;). Verðu eitthvað skemmtilegra að fara að kaupa sér föt og svona.

Ég keypti mér þrekhjól og hef verið voðadugleg að hjóla á kvöldin eftir að Elísabet Ósk er farin að sofa, það er bara hjólað og horft á sjónvarpið (má ekki missa af neinu).

Það er búið að vera þetta fína veður alla vikuna, reyndar svoldið kalt en sólin skín. Fór aðeins að vinna í garðinum, úff, maður veit bara ekki hvar maður á að byrja þegar þetta er svona mikið. Grasið var allavega slegið og nokkur tré klippt til. Ætla svo að reyna að taka svoldið í gegn fyrir framan húsið, svo að það verði nú aðeins huggulegra.

 Lítil dama kallar, þannig að þetta verður að vera nóg í bili.

ciao 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 18:32:17 / olafiaj

pirr

Það er stundum svo greinilegt að sumir vita ekkert um börn, þarfir þeirra...

Ég spjalla stundum við strák sem ég var aðeins að deita í Hollandi (fyrir óléttu) og hann pirrar mig bara svo stundum með spurningum sínum. T.d. hvort ég fari nú ekki stundum að skemmta mér, skreppi í sund, í ræktina, hvað ferður alltaf svona snemma að sofa?  Ég útskýrði að ég færi nú ekki mikið að skemmta mér þar sem ég væri með lítið barn sem hefði á mér að halda, og að ég byggi ein og hefði ekki marga til að passa fyrir mig, svo kom spurningin um sundið og ræktina strax á eftir og fékk hann sama svarið, ég meina maður reynir nú að hreyfa sig eitthvað en þá er barnavagninn alltaf með í för, og allt sem ég fer og geri þá fylgir litla dúllan mín mér, nema kannski í söngtímann. Það er ekki að segj að manni langi ekki að kíkja eitthvað, skella sér í sund... en svona eru aðstæðurnar eins og er og ég sætti mig alveg við það. Maður kíkir í heimsókn, fer í verslunarferðir, ungbarnasund, mömmumorgnar, já og svo núna þá á ég mína söngtíma og það eru einu skiptin eins og er sem ég er tilbúin að skilja Elísabetu eftir í pössun.

 Varð bara pínu pirruð í gær þegar gaurinn spurði aftur "hvað færðu þú aldrei að gera eitthvað?" (do you never have any fun?)

 Varð bara aðeins að rasa út!!!!!!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5